miðvikudagur, apríl 30, 2008

Ég hef tekið ákvörðun. Eftir að hafa lært fram á nótt og ekki getað sofnað fyrr en mjög seint og verið vakin með símtali um 8 í morgun..... Þá ætla ég að taka með mér kók í prófið á eftir, þrátt fyrir að ég sé hætt að drekka það.

mánudagur, apríl 28, 2008

Ég sá fyrsta fífilinn þetta árið fyrir utan VR II í gær. Mikið óskaplega þótti mér hann fallegur.

fimmtudagur, apríl 24, 2008

Ég held að Letistrumpur passi betur en Málarastrumpur þessa dagana, eða kannski Þreyttistrumpur ef hann væri til ;)

Í dag er sumardagurinn fyrsti og fyrir "nokkrum" árum hefði ég átt vona á sippubandi, húllahring, sápukúlum eða krítum í sumargjöf. Það voru góðir tímar og fór ég gjarnan út í góða veðrið með sumargjöfina. Í dag er engin sumargjöf og ég hef ekki hugmynd um hvernig veðrið er. Í staðinn sit ég inni yfir próflestri sem gengur vægast sagt hægt. Þetta er vitanlega ávísun á þunglyndi en slíkt gæti þó ekki verið fjarri mér.

6 dagar í fyrsta próf, vika í dagbókarskil, 8 dagar í síðasta próf og svo eitt verkefni eftir. Eftir það sumarbústaður og grill, gott veður og ís :)

föstudagur, apríl 11, 2008




Ég held þetta sé ekki fjarri lagi, eða hvað?