fimmtudagur, mars 29, 2007

Kominn tími á blogg fyrir löngu. Stundum gefst bara ekki tími til að sinna æstum aðdáendum mínum í bloggheiminum, þetta er eitt af þeim tímabilum.

Ég hef eiginlega bara fréttir úr skólanum. Búin að skrá mig í námskeið fyrir næsta ár og líst bara vel á. Vildi að þessi ógnarönn væri búin og dauðkvíði þessum 5 lokaprófum öllum með tölu. Það er meira að segja búið að taka að mér upplestrarvikuna því þá fer ég í tvö próf. Er þetta hægt, já maður spyr sig.

Þessa dagana er ég að skrifa bókmenntasögulega ritgerð um Davíð Þorvaldsson, þið fáið stóran plús í kladdann ef þið vitið hver hann var eða bara eitthvað um hann.
Því miður kemst ég ekki til Ólafvsvíkur með Mimma um helgina. Þarf að gera þessa ritgerð og aðra ritgerð o.s.frv.
Arna litla mágkona ætlar að koma og gista hjá okkur á morgun. Atli er að fara til Miami í þrjá mánuði og hún er að skutla honum eins langt og hægt er. Síðan geta þau systkinin talað um hversu vondir makar þeirra eru að fara svona til útlanda;)

Annars hef ég ekki mikið að segja, nema ég er komin með vinnu í sumar á leikskólanum Öldukoti, hlakka til að vinna aftur á leikskóla en sakna Pálmholts sárt:'(

6 dagar í norðurferð, er að sturlast úr tilhlökkun. Mamma og pabbi eru búin að lofa að gefa mér svo gott að borða:)

sunnudagur, mars 18, 2007


Þessi sæti litli strákur á afmæli í dag. Til hamingju með það sætasti litli bróðir í heimi:) Hann er reyndar ekki svona lítill og sætur lengur, orðinn stærri en systirin. Nú er hann bara sætur og stór og 15 ára, sem þýðir að stúlkan á myndinni hlýtur að vera fjörgömul.

Þetta er í annað skipti á þessum 15 árum sem ég get ekki verið hjá honum á afmælinu, sakna þín litli Si minn. Ætlaru ekki að geyma handa mér köku?;)

þriðjudagur, mars 06, 2007

Fátt er betra en að fara í sund í góðu veðri og það er einmitt það sem ég gerði í dag:) Enda fannst mér ég eiga það skilið, vaknaði frekar snemma og lærði í allan morgun áður en ég fór í skólann. Eftir skóla fékk ég svo þá snilldarhugmynd að fara í sund og dró Styrmi með, hann fór bara úr vinnunni. Algjör snilld þessi nýja vinna, getur bara farið og komið þegar honum sýnist.
Eftir sundið keyptum við mér svo ís, þó það væri ekki eins hlýtt lengur og svo fór greyið aftur í vinnuna. Þá fór ég að horfa á Prison break, fullkominn dagur Álfhildur;)

Á sunnudaginn skrapp ég í heimsókn til Báru minnar afmælisbarns og át yfir mig í góðra vina hópi. Á morgun á svo stórmerkilegt fólk afmæli, nefnilega Hildigunnur mín sem verður þriggja ára (+20) og Steinar sem verður 18 ára. Ég ætla nýta mér afmælisgjöfina frá Steinari í tilefni dagsins og skella mér á leiksýningu hjá MR sem hann er einmitt að leika í.

Til hamingju bæði tvö.