miðvikudagur, ágúst 01, 2007

*Ótrúlega margt að gerast

*Ég er að fara að flytja eftir hálfan mánuð á stúdentagarðana.

*Bíllinn er bilaður:(

*Styrmir er kominn aftur úr ferðalaginu.

*Ég er búin að eignast litla, ótrúlega sæta frænku sem heitir Eva Hrund:)

*Á morgun fer ég norður. Hvar verður þú um helgina?

*Ég er byrjuð aftur að vinna á leikskólanum.

*En það merkilegasta af öllu er að sú besta kom til mín á sunnudaginn. Verst hvað þetta var stutt Svava mín. En nú þarf ég að fara að koma í heimsókn, líka til að kíkja á Evu litlu.

Við vinkonurnar skemmtum okkur frábærlega saman og auðvitað bauð barinn okkur drykk:)



Mimmi fékk svo að koma með á mánudagskvöldið, enda hafði hann verið á búðarrápi með Svövu allan daginn.