mánudagur, október 06, 2008

Fyrir 14 vikum fannst mér farið að sjá rosalega mikið á mér
Nú 14 vikum seinna neyðist ég til að viðurkenna að það var ekki rétt.

Gangi ég tvær vikur fram yfir á ég tæpar 14 vikur eftir, gaman að sjá hvernig þetta endar:P

Var semsagt að setja inn nýjar bumbumyndir á síðuna og áttaði mig á því að ég er aðeins búin að stækka. Það tekur á að bera lítið átvagl með bollukinnar:)

Helgin fór í algjöra leti sem var voða gott. Stelpumyndir og nammi á laugardagskvöldið með Ingu og Brynju. Dagvaktin í gærkvöldi var fáránlega fyndin, sveppir og Georg já nei! Plan vikunnar er svo að hefjast handa við BA ritgerð, vonandi að hitta leiðbeinanda og gera grútleiðinlegt verkefni í Íslendingasögum. Jess!